Vöruflokkar
Ræktun.
Öll hrossarækt fer fram á Stóra –Vatnsskarði í Skagafirði.
Þar er mikið landrými og fjöbreytt landslag sem hentar vel hrossum í uppeldi. Auk okkar hér á Kvistum standa að ræktun hrossana foreldrar mínir og systkyni.
Öll okkar hross eru skráð í worldfeng og eru til skráðar heimildir um ættir hrossa frá Stóra-Vatnsskarði allt frá árinu 1950 er afi minn og afabróðir stunduðu hrossarækt og voru báðir miklir hestamenn sem lögu áheslu á að vera vel ríðandi og átti afi jafnan mjög sprettharða hesta en á þeim árum voru kappreiðar vinsælar .
Nú eru flest okkar hross komin út af einni hryssu Lísu frá Stóra-Vatnsskarði sem fædd var 1969 og átti fjölda afkvæma.
Undan Lísu var Gjósta IS1980257017 mjög glæsileg hryssa og mikill gæðingur sem sýnd var á fjórðungsmóti 1987 og hlut þá m.a. 8,5 fyrir tölt og 9 fyrir brokk. Því miður fékk ég bara eitt folald (Gola IS1988257383) undan Gjóstu en hún fórst 9 vetra gömul.
Önnur hryssa undan Lísu er Freisting IS1983257037 viljug og orkumikil klárhryssa sem hefur gefið góð hross og er hennar besta afkvæmi Lukka IS200157651 á landsmóti 2008 hlaut hún fyrir byggingu 8,46 og hæfil 9.18 aðaleinkun 8,89 sem gerir hana að hæstdæmda kynbótahross fram til þessa. Faðir Lukku er Gjafar IS1998157658 sem seldur var ógeltur til Skotlands en hann er undan Golu sem er dóttir Gjóstu enda líkist Lukka Gjóstu langömmu sinni að mörgu leiti, mikill fótaburður rými og myndarskapur.
Nokkrar aðkeyptar hryssur eru í ræktun hjá okkur og má þar nefna Svölu IS1985286541 frá Vetleifsholti sem er undan Hrafnssyni og Kirkjubæjarættuð í móðurætt. Svala hlaut 8,14 fyrir hæfileika þ.m. 8,5 fyrir skeið og vilja ,undan henni hafa komið ágæt hross og er þar bestur Kjói IS1996157654 undan Reyk frá Hoftúnum en Kjói var í nokkur ár keppnishestur Páls Braga Hólmarssonar og náði hann góðum árángri með hann í fimmgangsgreinum.
Ýmsir stóðhestar hafa verið notaðir undanfrin ár en einn er sá hestur sem markað hefur nokkur spor og reynst okkur vel en það er Platon frá Sauðárkróki sem við notuðum fyrst 1990.

Árið 2005 notuðum við Hrannar IS1999187197 frá Þorlákshöfn dómur L.M.2008 b:8.49 h8:59 a8:55 m.a. 9.5 fyrir skeið undan honum er glæsilegur hópur tryppa.
Vorið 2006 notuðum við Geisla frá Gígjarhóli b8:15 h8:46 a8:34. Geisli er undan Glampa frá Vatnsleysu og Hvönn frá Gígjarhóli sem m.a. hefur hlotið 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi.
Sumarið 2007 var notaður Vidalín IS2004186613 frá Hamrahól. Faðir Vídalíns er Tígull frá Gígjarhóli b8.65 h8.56 a8.60 og móðir Ósk frá Hamrahóli b8.14 h8.65 a8.45. Vídalín var dæmdur í forskoðun fyrir landssmót 2008 þá 4ra vetra og hlaut 8.02 fyrir byggingu og 8.32 fyrir hæfileika meðaltal 8.20 og hélt hann þeim dóm á landsmóti sem er góður árangur hjá svo ungum hesti.
Vídalín fór síðan í dóm aftur 5 vetra og hlaut þá 8.66 fyrir hæfileika m.a. 9 fyrir skeið og 9,5 fyrir vilja og geðslag.
Hægt er að sjá Vídalín og afkvæmi hans á www.vidalin.net
Sumarið 2008 var svo hjá okkur 3ja vetra foli Aldur frá Brautarholti undan Dyn frá Hvammi og gæðingamóðurinni Öskju fra Brautarholti.
Hann var sýndur fjögurra vetra og hlaur þá 8,08 fyrir byggingu m.a. 9 fyrir bak og lend og prúðleika og 8,28 fyrir kosti hæst 9.0 fyrir skeið.
Þar sem okkur leist mjög vel á tryppin undan Vídalín ákváðum við að nota hann aftur í sumar á flestar hryssurnar.
Auk þess fóru tvær hryssur undir Kiljan frá Steinnesi ein hryssa undir Álf frá Selfossi og ein hryssa undir Klæng frá Skálakoti.
Folöldin í ár eru undan Kiljan frá Steinnesi , Gaum frá Auðsholtshjáleigu, Fróða frá Staðartungu og Sæþóri frá Korpu sem er sonur Sæs Bakkakoti og Snædísar Selfossi.
En allar nánari upplýsingar um ræktun hrossana er að finna inn á worldfeng.

