Vöruflokkar
Lukka frá Stóra-Vatnsskarði.
Það má segja að ferill Lukku hafi verið líkastur öskubusku ævintýri og engan grunaði haustið 2004 þegar ég sótti hana norður á Vatnsskarð að hún ætti eftir að ná þeim árángri í kynbótadómi sem hún hefur nú náð.
Ég var haustið 2004 norður á Vatnsskarði að sækja nokkur tryppi sem átti að fara að temja og var þá ein hryssa í réttini ansi fyrirferðamikið og nefndi ég það við pabba að ég yrði að taka þessa suður svo hún myndi ekki slasa gamla mannin, hann hafði svo sem ekkert á mót því alltaf gott að fækka aðeins í stóðinu.
Eftir því sem ég skoðaði hana betur þarna í réttini leist mér alltaf betur og betur á gripinn en áður hafði ég aldrei verið neitt að spá í hana og man ekki eftir henni sem neitt áberandi tryppi. Eitthvað hefur gamli maðurinn skinjað hvað ég var að spá svo hann segir mér að ég meigi eiga hana úrþví mér lítist svona vel á hana en setti eitt skilirði sem var að ef hún yrði góð þá mætti ég ekki selja hana. Hann hefur nú oft gaukað að mér hrossum en þessi kvöð var alveg ný.
Hún spektist flótt þegar farið var að eiga við hana var samt mjög næm og lífleg en þrátt fyrir að vera dálítið villt var hún mjög fljót að læra og vildi allt fyrir mannin gera.
Fyrsti veturinn fór mikið í að teyma hana og einnig hljóp hún mikið með í rekstum og var strax mjög kjörkuð, alltaf fremst í rekstri og ákveðin í að vera drottningin í hópnum og önnur hross voru fljót að skynja yfirburði hennar svo engu hrossi datt í hug að hreyfa við henni.
En á þessum tíma var Hansi (Hans Þór Hilmarsson) á Hólum en fór á bak henni þegar hann kom á Kvisti í fíum. En Hansi sá að mestu um tamnigu á henni og skilaði því verki frábærlega og hefði ég ekki getað hugsað mér að það hefði verið betur gert.
Einhverju sinni um veturinn kom Helgi Már vinur Hansa með honum og sá Lukku og varð honum þá að orði að þessi meri ætti eftir að verða heimsmeistari, við tókum nú hæfilegt mark á honum sáum nú ekki alveg hvar hún ætti að geta sett heimsmet.
Veturinn eftir hélt svo Hansi áfram að þjálfa Lukku og gekk það allt eins og best var á kosið sýndi hana svo á ræktunarsýningu um vorið þar sem hún vakti mikla athygli svo mikið reyndi á kvöðina frá gamla manninum.
Hún var sýðan sýnd í kynbótadóm og hlaut þá 8.42 fyrir byggingu og 8.29 fyrir hæfileika meðaleinkun 8.34 og var þar með komin inn á landsmót 2006 þar sem hún hafnaði í 7 sæti í flokki 5 vetra hryssna.
Þar sem við vissum að hún ætti mikið inn og hefði langt í frá sýnt sína bestu kosti var ákveðið að halda henni geldri og stefnan tekin á landsmót 2008 og hélt Hansi áfram að þjálfa hana veturinn 2007 þegar hann stundaði verknám hérna á Kvistum og var sú þjálfun hluti af því prófi sem hann tók í verknámi.
Hansi fór svo með hana í gæðingakeppnir og á Íslandsmót þar sem þau stóðu sig ávalt með ágætum árinu lauk hann svo með því að fara með hana í kynbótadóm síðsumars á Hellu þar sem hún fór í frábæran dóm 8.46 fyrir byggingu og 8.70 fyrir hæfileika meðaltal 8.61 og var þar með hæst dæmda hryssa þess árs .
Frábær árángur hjá þeim og ánægjuleg uppskera eftir vel unna vinnu sem var svo sannalega að skila sér .
Þær breytingar urðu síðan s.l. vetur að ég tók við þjálfun á Lukku og ákveðið var að Þórður Þorgeirsson myndi sýna hana um vorið.
Það var ekki leiðinlegt að þjálfa þennan mikla gæðing en það var ekki laust við að maður væri stundum hálf feimin við hana því hún býður upp á svo mikið að stundum veit maður ekki hvar þetta ætlar að enda og verður að gæta hófs þói augnablikið sé stórkostlegt og hafa vit fyrir gæðingnum.
En til að brjóta upp venjulegt útreiðamynstur hef ég reynt að hafa fjölbreytni í þjálfun og var hún m.a. bæði í sundi hjá Faxa hestum veturinn 2007 og svo á sundbretti hjá þeim félögum á Kvíarhóli Sigga og Viðari s.l. vetur.
Allt þetta hefur hjálpað til með að gera gott hross betra auk þess fékk ég góða leiðsögn hjá Johanni Höggberg sænskum þjálfara einnig var ég undir smásjá Þórðar sem ætlaði sér stóra hluti með vorinu svo það var betra að vanda sig og klúðra engu.
En það er skemmst frá því að segja að allt gekk upp eins og til var ætlast og í dómi í vor hlaut hún 8.46 fyrir byggingu og 9.13 fyrir hæfileika meðaleinkun 8.86 og á landsmóti bætti hún um betur og hlaut 9.18 fyrir hæfil meðaleinkun 8.89.
Hún var þar með orðin með hæstu meðaleinkun sem íslenskt hross hefur hlotið fyrr og síðar þar með sönnuðust orð Helga Más um að hér væri komin heimsmeistari.
Í vor var Lukku haldið undir Álf frá Selfossi þ.e.a.s. hún var sædd og með staðfest fyl og er því mikill spenningur því sem fæðist næsta vor .
Eftir langt og strangt þjálfunarferli s.l. ára hefur Lukka það gott í hausthögunum er feit og sælleg og á vonandi eftir að skila íslenskri hrossarækt gæðingum .
Hér fylgir svo dómur Lukku frá landsmót 2008.
Landsmót 2008 – Hella
IS-2001.2.57-651
Lukka frá Stóra-Vatnsskarði
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Mál (cm):
141-139-64-144-27,5-18,0
Aðaleinkunn: 8,89
Sköpulag: 8,46 |
Kostir: 9,18 |
|
Myndarlegt
Djúp lend Öflug lend Stíft spjald Áslend
Langvaxið Fótahátt
|
Fegurð í reið: 9,5
|

